10.12.1934
Sameinað þing: 20. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2840 í B-deild Alþingistíðinda. (164)

Kosningar

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég er ekki búinn við því að gefa neina ákveðna yfirlýsingu um þetta og mér er óskiljanlegt, hvers vegna hv. þm. biður um hana. Mér skilst þetta vera mál milli Sjálfstfl. og Bændafl. Að því er snertir kosninguna nú, þá hefir hv. 2. þm. Reykv. svarað því greinilega, að við munum ekki stilla upp nema einum manni, svo þó við vildum miðla Bændafl., þá getum við það ekki. En að ég slái nokkru föstu um þetta án þess að ráðfæra mig við minn flokk, sér hv. þm., að alls ekki kemur til mála.