05.12.1934
Efri deild: 53. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1941 í B-deild Alþingistíðinda. (2414)

149. mál, útsvar

Magnús Jónsson:

Mér þætti viðkunnanlegra, fyrst ég skrifaði undir nál. með fyrirvara, að gera grein fyrir því, í hverju hann liggur. Hann er í því fólginn, að þetta frv. stendur í nánu sambandi við frv. um tekju- og eignarskatt, og þar sem ég er því andvígur, fannst mér réttara að skrifa undir frv. það, sem hér liggur fyrir, með fyrirvara.