03.12.1934
Sameinað þing: 18. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 350 í B-deild Alþingistíðinda. (329)

1. mál, fjárlög 1935

Jónas Jónsson:

Hér eru uppi tvær stefnur. Önnur er sú, að láta dýrtíðaruppbótina haldast eins og hún er, en hin er sú, sem kemur fram í þessari till. Stj. er hér samþykk meiri hl. n., og þessi till. er komin fram í áframhaldi af því. Þess vegna er ekki um annað að gera en að ganga til atkv. og láta fara sem auðið verður, hvort till. verður felld eða samþ.