15.12.1934
Efri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2795 í B-deild Alþingistíðinda. (3933)

66. mál, fólksflutningar með fólksbifreiðum

Forseti (IngP):

Nú eru 4 ræðumenn á mælendaskrá, og geta bætzt við fleiri, svo að líklegt er, að málinu verði frestað hvort sem er, og getur hv. 1. þm. Reykv. þá beðið með sína ræðu, ef hann vill. Ég geri ráð fyrir, að umr. verði frestað og að málið verði tekið út af dagskrá.