13.12.1934
Neðri deild: 58. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 153 í C-deild Alþingistíðinda. (4159)

128. mál, Skuldaskilasjóður útgerðarmanna

Finnur Jónsson:

Ég mótmæli því, að ég hafi nokkurn tíma farið hér inn á einkamál hv. 6. þm. Reykv. En ég hefi rætt hér nokkuð opinbera framkomu þessa hv. þm. frá þeim tíma og frá þeim stað, þar sem við höfum sérstaklega unnið saman, til þess að sýna, hvers trausts hann mætti vænta af mér í samvinnu um opinber mál. Inn á einkamál þessa hv. þm. hefi ég aldrei farið. Ef mönnum finnst það ljótt, sem ég hefi sagt um þennan þm., þá er orsökin sú, að framkoma þessa þm. hefir verið ljót, því ég hefi eingöngu skýrt frá staðreyndum.