08.12.1934
Neðri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 234 í C-deild Alþingistíðinda. (4339)

20. mál, ríkisútgáfa skólabóka

Sigurður Einarsson:

Ég vildi mælast til þess, að mál þetta væri tekið til umr. nú, því það hefir dregizt, sökum þess hve mörg mál hafa verið til afgreiðslu. Og þó að frsm. meiri hl. sé ekki viðstaddur, þá get ég upplýst það, að hann hefir farið þess á leit við mig, að ég yrði fyrir svörum, því við erum að öllu leyti sammála um málið.