13.11.1934
Neðri deild: 35. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 282 í C-deild Alþingistíðinda. (4480)

59. mál, fiskiráð

Ólafur Thors:

Ég tel enga ástæðu til að fresta umr. um þetta mál. Það er að vísu rétt, að eftir mánaðar strit hefir andstæðingum okkar tekizt að hnoða saman einhverju frv. með því að hnupla, hugmyndum úr þessu frv. Ég efast ekki um, að þetta frv. þeirra sé vanskapningur, og tel ég því enga ástæðu til að fresta málinu þess vegna.