28.11.1934
Neðri deild: 47. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 415 í C-deild Alþingistíðinda. (4685)

163. mál, fasteignaveðslán landbúnaðarins

Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):

Þetta er viðkvæmt mál fyrir hv. þm. V.-Húnv. við í landbn. höfðum hugsað okkur að afgr. þetta mál og mál hv. þm. V.-Húnv. í frv. því, sem hér liggur fyrir. En ef hv. flm. leggur svo mikið kapp á það, og sérstaklega ef hæstv. forseti mælist til þess líka, geri ég ráð fyrir að geta afgr. mál hans strax í fyrramálið. Ég skal lofa að gangast fyrir, að þetta verði gert, ef hv. þm. leyfir þessu máli að fara umræðulaust til 2. umr., þannig að hægt verði að slá saman umr. um bæði málin.