10.12.1934
Sameinað þing: 20. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í D-deild Alþingistíðinda. (5146)

166. mál, verslunarerindrekar í Mið-Evrópu

Ólafur Thors:

Að gefnu tilefni vil ég beina þeirri fyrirspurn til hv. 2. landsk., og bið hann að svara því alveg skilyrðislaust, hvort hann telur rétt að segja upp þegar í stað norsku samningunum. Og skora ég á hann að segja annaðhvort já eða nei við þeirri spurningu, ef hann vill ekki láta skoða það sem lítilfjörlegt grín, er hann sagði í lok ræðu sinnar.