22.10.1934
Neðri deild: 16. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 539 í B-deild Alþingistíðinda. (547)

18. mál, hagfræðiskýrslur

Frsm. (Thor Thors):

Allshn. er sammála um að leggja það til, að þetta frv. verði samþ. Frv. fer fram á að skylda útgerðar- og iðnfyrirtæki til að gefa skýrslur til hagstofunnar um ýms efni. N. vill bæta því við, að skipamiðlarar, sem hafa skip í förum, og aðrir, sem hafa atvinnu af flutningatækjum, séu einnig skyldir til að gefa skýrslu árlega.