12.11.1934
Efri deild: 36. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 742 í B-deild Alþingistíðinda. (855)

27. mál, sláturfjárafurðir

Frsm. (Páll Hermannsson):

Ég vil leyfa mér að vekja athygli hæstv. forsetu á því, að hér liggur fyrir brtt. við frv., sem er mjög þýðingarmikil. Landbn. hefir ekki haft tækifæri til þess að koma saman og athuga till. þessa, sem ég verð þó að telja mjög æskilegt. Ég vil því leyfa mér að óska þess, að forseti taki málið út af dagskrá nú, og ég býst við, að n. geti athugað till. þessa í dag, svo málið geti komið á dagskrá aftur á morgun og þurfi því ekki að tefjast mikið vegna þessara hluta.