27.03.1935
Neðri deild: 39. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 940 í B-deild Alþingistíðinda. (1360)

74. mál, Skuldaskilasjóður vélbátaeigenda

Jóhann Jósefsson:

Með því að skrifl. brtt. mín veltur á miklu um það, hvort málið kemur vélbátaúveginum að gagni eða ekki, og þar sem tveir hv. dm., sem ég veit, að hafa samúð með því, að málið verði afgr. í því formi, sem ég fer fram á í till., eru nú veikir, þá mælist ég til þess við hæstv. forseta, að hann fresti atkvgr. til föstudags. Ég get sagt, að það eru líkur til, að þeir verði þá mættir.