22.03.1935
Neðri deild: 35. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1013 í B-deild Alþingistíðinda. (1440)

75. mál, hæstiréttur

Forseti (JörB):

Brtt. þessi er borin fram með ákveðið markmið fyrir augum af hálfu hv. flm., og mun ég því ekki skipta henni við atkvgr. Hv. þm. verða að ráða það við sjálfa sig, hvernig þeir vilja haga atkvgr. Hv. þm. verða því að greiða atkv. um till. eins og hún liggur fyrir.