09.12.1935
Sameinað þing: 28. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í B-deild Alþingistíðinda. (283)

1. mál, fjárlög 1936

Finnur Jónsson:

Mér er mjög vel ljós hugsun hv. 1. þm. Skagf. í þessu efni. En hitt er mér líka jafnljóst, að þessi till. byggist á því einu, að slík samþ., sem hér um ræðir, liggi fyrir eða verði gerð nógu snemma til þess að hægt verði að leiðrétta þennan lið. En fyrir því virðist enginn möguleiki, þar sem enn er ekki komin fram hér á þinginu nein till. um breyt. þingsköpunum að því leyti að fella niður ritun á þingræðum. Ég held því enn fast við þá áskorun mína til hæstv. forseta, að hann taki til athugunar, hvort ekki sé rétt að vísa þessari till. frá.