20.12.1935
Efri deild: 100. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2022 í B-deild Alþingistíðinda. (2950)

32. mál, loftskeytastöðvar í skipum

Frsm. meiri hl. (Sigurjón Á. Ólafsson) [óyfirl.]:

Þetta frv. hefir tekið þeim breyt. í Nd., að samkv. 1. gr. er heimild fyrir atvmrh. að mæla svo fyrir sem þar er sagt. Einnig er í 2. gr. breytt afli loftskeytastöðvanna frá því, sem í frv. var fyrst. - Þrátt fyrir þessar breyt. get ég sætt mig við frv., úr því sem komið er, og vænti þess, að d. fallizt á að samþ. frv.