19.12.1935
Efri deild: 99. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2334 í B-deild Alþingistíðinda. (3363)

173. mál, fólksflutningar með bifreiðum

Frsm. meiri hl. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Ég skal að vísu beygja mig undir vilja ráðh. í þessu efni, ef hann hyggur, að það greiði eitthvað fyrir framgangi málsins að fresta að greiða atkv. um það nú. Ég sé satt að segja ekki, hvaða breytingar í þessum till. það eru, sem geta leitt til samkomulags um þetta mál. Það er búið að þæfa svo mikið um það.