30.03.1935
Efri deild: 38. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 420 í B-deild Alþingistíðinda. (475)

4. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. (Jón Baldvinsson):

Það má vera rétt, sem hæstv. fjmrh. segir, að eins og nú er í skattstofunni sé þetta fullnægjandi. En það sannar ekki, að svo verði áfram, ef engin lögskylda er fyrir því. Þar upplýsingar, sem skattstofan semur handa hagstofunni, eru út af fyrir sig fróðlegar. En þær sýna engin einstök dæmi, eins og menn vilja fá að vita.