18.02.1935
Efri deild: 6. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 565 í B-deild Alþingistíðinda. (718)

9. mál, lántaka fyrir ríkissjóð

Magnús Jónsson:

Ég vil aðeins geta þess hér, að þegar hv. form. Sjálfstfl. fór fram á það, að málinu yrði lokið strax, var það vitanlega ekki í öðrum tilgangi en þeim, að málið yrði afgr. greiðlega á þinginu. En það getur ekki skipt neinu, hvort frv. er afgr. nokkrum dögum fyrr eða síðar. Annars ætla ég ekki að fjölyrða frekar um þetta, af því að hæstv. fjmrh. tók svo vel í að málinu yrði vísað til n. (Fjmrh.: Hv. þm. tekur þá ábyrgð á því gagnvart Sjálfstfl., ef dregst að afgr. málið). Já.