02.05.1936
Neðri deild: 61. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1096 í B-deild Alþingistíðinda. (1672)

126. mál, sala Hamra við Akureyri

*Héðinn Valdimarsson:

Það var nú nokkuð það sama, sem ég ætlaði að spyrja um, eins og hv. þm. V.-Húnv. Það hefir líka áhrif á söluverð jarðarinnar, hvort bænum er ætlað að láta af hendi aftur ókeypis hluta af landinu. Vildi ég því gjarnan fá upplýsingar um, hver meiningin er með þessu.