18.04.1936
Neðri deild: 51. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í D-deild Alþingistíðinda. (2995)

84. mál, friðun Faxaflóa

Flm. (Ólafur Thors):

Ég vil aðeins þakka hæstv. forsrh. fyrir góðar undirtektir hans í þessu máli. Það er rétt, sem hann segir — og ég tók fram áðan —, að það er sitt hvað, að vilja og að geta komið í framkvæmd; en ég þykist þess fullviss af orðum hæstv. forsrh., að hann muni ýta á eftir þessu mikla hagsmunamáli með öllum kröftum.