24.04.1936
Neðri deild: 55. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 632 í B-deild Alþingistíðinda. (886)

88. mál, vegalög

Thor Thors:

Eins og vænta mátti af hv. þm. V.-Sk., vildi hann bera blak af hv. samgmn., sem hann á sæti í, en þar sem hann er þessu máli velviljaður, er ég fús á að láta allar deilur niður falla, og vona ég svo, að hv. samgmn. geti öll orðið sammála, um þetta við 3. umr. málsins.