18.02.1937
Efri deild: 4. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 217 í C-deild Alþingistíðinda. (1468)

15. mál, sauðfjárveiki

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég vil beina þeirri fyrirspurn til hæstv. landbrh., hvort stjórnin hafi hugsað sér að bera fram fleiri sjálfstæð lagafrv. um þetta efni. Hér er um geysimikil verkefni að ræða, og því tel ég æskilegt og sjálfsagt, að slík frv. komi sem fyrst fyrir þingið, því að ekki mun veita af tímanum. Ég mun hér ekki fara út í einstök atriði þessa frv., en geri ráð fyrir, að það komi í mjög breyttri mynd frá nefndinni, eða a. m. k. með geysimiklum viðaukum.