22.03.1937
Neðri deild: 24. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 389 í C-deild Alþingistíðinda. (1637)

74. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

*Flm. (Bergur Jónsson):

Frv. þetta stendur í beinu sambandi við frv. á undan. Ég sé ekki ástæðu til þess, þar sem það hefir legið hér fyrir þrisvar áður, að orðlengja frekar um það.

Frv. er borið fram í því skyni að tryggja félögunum nægilegt fé til starfsemi sinnar.