15.04.1937
Efri deild: 41. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 74 í B-deild Alþingistíðinda. (240)

3. mál, gjald af innlendum tollvörutegundum

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Fjhn. hefir athugað þetta mál og leggur til, að frv. verði samþ. Það hefir gengið gegnum Nd. ágreiningslaust, svo að ég hygg, að ekki þurfi frekari grein fyrir því að gera. Þó hefir einn nm., 1. þm. Reykv., skrifað undir nál. með fyrirvara.