19.04.1937
Sameinað þing: 12. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 74 í D-deild Alþingistíðinda. (2434)

139. mál, lagasafn

*Thor Thors:

Ég vil aðeins vekja athygli á því, hvort rétt sé að gefa út þetta safn af lögum að svo stöddu, þar sem vitað er, að miklar breyt. á þeim standa fyrir dyrum. Hefi ég þar í huga m. a. breyt. þá á hegningarlögunum, sem ekki mun dragast lengur en til næsta árs, og breyt. á réttarfarslöggjöfinni, sem er mikill lagabálkur, er vænta má, að verði lagður fyrir næsta Alþingi. Ég vil vekja athygli á því, hvort rétt er að ganga frá lögbókinni áður en þessar miklu breyt. ná fram að ganga.