06.04.1937
Sameinað þing: 9. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 101 í D-deild Alþingistíðinda. (2471)

85. mál, milliþinganefnd í bankalöggjöf o. fl.

1) PO:

Ég er að sjálfsögðu með því, að þessari till. sé vísað til fjvn., en mér virðist, að hér sé að ástæðulausu verið að slíta gang málsins út úr eðlilegum og réttum farvegi, með því að skera niður umr. um þetta mál, og ég get ekki séð, að ástæðan fyrir því sé önnur en einhver hræðsla við að horfa framan í þá staðreynd, sem hér blasir við okkur í till.formi; það á að smeygja þessu fram af sér með ósköp ókarlmannlegum hætti. Ég segi því nei.

17 þm. (GÞ, GÍ, GTh, HV, HV, JakM, JJ, MJ, MT, ÓTh, PHalld, PM, SE, SÁÓ, ÞÞ, BJ, EmJ) fjarstaddir.