01.04.1937
Sameinað þing: 8. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í D-deild Alþingistíðinda. (2543)
23. mál, uppbót á bræðslusíldarverði
Forseti (JBald):
Umr. þessar hafa nú staðið í 2 stundir og fallið að jöfnu með og móti till. Mér þykir því rétt, með skírskotun til 37. gr. þingskapanna, að takmarka ræðutíma þingmanna hér eftir við 15 mín.