23.03.1937
Neðri deild: 25. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 224 í B-deild Alþingistíðinda. (529)

86. mál, alþýðutryggingar

Forseti (JörB):

Þetta er 2. umr., svo að það er hægt að ráða niðurlögum málsins við 3. umr., eftir því sem menn hafa krafta til, svo að ég get ekki slegið því á frest, að atkvgr. fari fram. Það er sízt með mínu samþykki, að þm. eru fjarverandi, að undanskildum einum og einum þm. Ég get ekki svarað fyrir það, þó að menn vanræki að gegna þingskyldu sinni.