22.11.1937
Efri deild: 32. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 988 í B-deild Alþingistíðinda. (1334)

98. mál, bráðabirgðatekjuöflun ríkissjóðs og jöfnunarsjóðs bæjar- og sveitarfélaga

Forseti (EÁrna):

Umr hafa nú staðið nokkuð lengi, og virðist mér sem þær séu komnar út á allbreiðan grundvöll. Verð ég því að notfæra mér heimild þingskapanna og takmarka ræðutíma. Nokkuð margir eru á mælendaskrá, og mun ég því ákveða, að hver ræðumaður hafi fyrst um sinn 10 mínútna ræðutíma.