02.12.1937
Efri deild: 40. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1002 í B-deild Alþingistíðinda. (1345)

98. mál, bráðabirgðatekjuöflun ríkissjóðs og jöfnunarsjóðs bæjar- og sveitarfélaga

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég vildi aðeins beina þeirri ósk til hæstv. forseta, þar sem svo stendur á, að hv. 1. þm. Reykv., sem er minni hl. n., er veikur, hvort hæstv. forseti sér sér ekki fært að taka þetta mál af dagskrá í þetta sinn. Ég fer aðeins fram á, að málið verði ekki tekið fyrir í dag.