29.10.1937
Sameinað þing: 4. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 295 í B-deild Alþingistíðinda. (172)

30. mál, fjáraukalög 1935

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta frv. er nákvæmlega samskonar og áður hefir tíðkazt að leggja fyrir Sþ. Sé ég þess vegna ekki ástæðu til að skýra það neitt sérstaklega, en óska eftir, að málinu verði vísað til hv. fjvn. að lokinni þessari umr.