25.10.1937
Neðri deild: 10. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 138 í C-deild Alþingistíðinda. (1841)

22. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Finnur Jónsson:

Það er rétt hjá hv. flm. þessa frv., að afdrif þess muni veita á öðru en umr. hér í hv. þd. Það er kunnugt, að frv. fjallar um eitt af þeim málum, sem samningar standa nú yfir um milli stjórnarflokkanna, þ. e. a. s. hve mikið skuli niður fella af útflutningsgjaldi af sjávarafurðum. Það er þess vegna sama máli að gegna um þetta frv. og önnur frv. sjálfstæðismanna, sem þeir eru nú að burðast með í auglýsingaskyni, vitandi það, að um þau mál standa nú yfir samningar milli stjórnarfl. og að þessi frv. þeirra eru aðeins kaflar úr þeim samningum.