21.12.1937
Efri deild: 55. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í D-deild Alþingistíðinda. (2316)

134. mál, sjúkrahúsrúm fyrir geðveika menn

Flm. (Guðrún Lárusdóttir):

Þetta er ósköp einfalt mál, og þurfa menn því ekki langan tíma til þess að átta sig á því. Og það mun ekki taka lengri tíma að afgreiða það á venjulegan hátt en vísa því lauslega til stj. Og væru menn kunnugir málavöxtum og því hræðilega ástandi, sem stafar af því, hvað rúmleysið er orðið tilfinnanlegt á Kleppi, mundu þeir samþ. till. eins og hún liggur fyrir.