20.11.1937
Neðri deild: 31. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 325 í B-deild Alþingistíðinda. (305)

68. mál, lántaka fyrir ríkissjóð

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég þarf nú að fara upp í Ed. að taka þar þátt í umr. En ég vildi aðeins taka það fram, að þó að þetta frv. verði samþ., þá hefir það ekki neina hækkun í för með sér á skuldum ríkisins. Ég tel ástæðulaust að fara nánar út í þetta mál, en vildi aðeins undirstrika þetta.