06.12.1937
Sameinað þing: 10. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í B-deild Alþingistíðinda. (38)

1. mál, fjárlög 1938

Forseti:

(BÁ): Mér er kunnugt um þetta umtal, sem hv. þm. G.-K, ræddi um, og forsetar munu að sjálfsögðu sjá um, að réttur stjórnarandstæðinga til að hefja eldhúsdag við umr. fjárl. verði ekki skertur, þrátt fyrir það, að þær samkv. venju fari fram við fyrstu umr.