15.12.1937
Neðri deild: 50. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 465 í B-deild Alþingistíðinda. (675)

117. mál, eignarnám í Grímsey

Thor Thors:

Það er aðallega samnm. minn, hv. 8. landsk. þm., sem stendur fyrir þessum fyrirvara okkar um þetta mál. Hann er ekki mættur á fundi, og geri ég ráð fyrir, að hann muni við 3. umr. gera grein fyrir því, hvernig á þessum fyrirvara stendur. Mér skildist á honum, að hann þyrfti að athuga betur við hreppsnefndina í Grímsey, hversu almennur vilji væri á bak við þetta frv.