10.12.1937
Neðri deild: 46. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 467 í B-deild Alþingistíðinda. (687)

100. mál, þurrmjólk í brauð o. fl.

Jón Pálmason:

Eins og sjá má á þskj. 296, höfum við hv. þm. Borgf. lagt til, að efni þessa frv. verði tekið upp í sambandi við afgreiðslu mjólkurmálsins. Fer ég því fram á það við hæstv. forseta, að hann fresti atkvgr. um þetta mál, þar til séð verður, hvernig fellur atkvgr. um þær brtt. okkar, er við höfum borið fram við 4. málið á dagskránni.