11.05.1938
Efri deild: 75. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1250 í B-deild Alþingistíðinda. (1866)

138. mál, mæðiveiki

*Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég skal taka það fram, að úr því á annað borð hefir verið samþ. breyt. við þetta frv., þá er ég því meðmæltur, að þessi brtt.. sem hér liggur fyrir, verði samþ., því að ég tel hana frekar til bóta. Það getur vel staðið svo á, að hrepps- og sýslunefndum þyki réttara að bæta fé í aðra vegi en hreppa- og sýsluvegi. og er þá rétt, að þær séu óbundnar um það. Þess vegna mæli ég eindregið með því, að þessi brtt. verði samþ.