11.05.1938
Neðri deild: 74. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1326 í B-deild Alþingistíðinda. (1956)

34. mál, atvinna við siglingar

*Frsm. minni hl. (Finnur Jónsson): Ég vil upplýsa, að það er rangt hjá hv. þm. Borgf., að fyrir frv. hafi verið mikill meiri hl. í Ed., eins og það var samþ. Brtt. shlj. mínum voru felldar með 7:7 atkv. Einn sjálfstæðismaður sat hjá og einn þm. var fjarverandi. Ef hann hefði ekki verið fjarverandi, hefðu brtt. verið samþ., svo að þetta er hrein tilviljun.