12.05.1938
Neðri deild: 76. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1432 í B-deild Alþingistíðinda. (2116)

137. mál, hitaveita í Reykjavík

*Pétur Halldórsson:

Herra forseti! Eins og hv. þdm. sjá, hefir nokkur breyt. verið gerð á frv. í Ed. Niðurlagi 1. gr. hefir verið breytt. Ég vil því leyfa mér að gera brtt. við 1. gr., þannig, að í stað orðanna „allt að 6,3 millj. króna“ til enda greinarinnar komi: allt að 7 milljónum króna, eða jafngildi þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt.

Ég skal ekki tefja málið með langri ræðu um þetta. Þetta er í samræmi við það, sem ákveðið var, þegar frv. var sent frá d. í gærkvöldi, og vona ég, að vilji sé í d. fyrir því, að gr. sé orðuð á þennan hátt.