11.05.1938
Neðri deild: 74. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í D-deild Alþingistíðinda. (2822)

131. mál, ný læknishéröð

*Flm. (Helgi Jónasaon):

Mér koma þessar brtt. einkennilega fyrir sjónir. Ég fer að halda, að ekki sé um sérlega brýna nauðsyn að ræða, úr því að hv. flm. muna ekki eftir þessu máli fyrr en á síðustu stundu. Ég veit, að þeim hafa ekki borizt um þetta óskir frá nokkrum kjósanda. Þetta er hótfyndni, og ekkert annað, og ég legg á móti brtt.