09.12.1939
Neðri deild: 79. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 759 í B-deild Alþingistíðinda. (1399)

113. mál, skatt- og útsvarsgreiðsla af stríðsáhættuþóknun

Atvmrh. (Ólafur Thors) :

Mér er ekki kunnugt um þessar tillögur, og hafa þær ekki komið fram í okkar flokki mér vitanlega. Virðist það ekki sanna ágæti þeirra eða áhuga þingmannsins um að koma þeim á framfæri.