15.12.1939
Neðri deild: 84. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1078 í B-deild Alþingistíðinda. (2128)

150. mál, ríkisborgararéttur

*Frsm. (Bergur Jónsson) :

Ég vil nota tækifærið til þess að minna hv. deild á, að það eru skiptar skoðanir um það, hvort það sé svo nauðsynlegt fyrir rafveitustjórnina að halda þessum manni, og kemur það fram í bréfi rafvirkjafélags Reykjavíkur, svo deildin verður að gera út um það, hvort hún vill halda sér við ákvæði laganna um þetta efni.