19.12.1939
Neðri deild: 87. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 367 í C-deild Alþingistíðinda. (3341)

158. mál, mæðiveikin

*Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):

Ég verð að fara fram á það við hæstv. forseta, að hann taki málið af dagskrá að sinni, með því að hér eru komnar fram allmargar brtt., sem n. hefir ekki enn getað áttað sig á. Um þetta mál hefir orðið samvinna milli landbn. beggja d., og vildi ég gjarnan geta lagt málið fyrir báðar n. áður en ákvörðun er tekin.