30.03.1940
Neðri deild: 26. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 533 í B-deild Alþingistíðinda. (1279)

40. mál, alþýðutryggingar

Forseti (JörB):

Ég skal ekki tefja framgang þessa máls hvað mig áhrærir. En þar sem margar brtt. liggja fyrir um það og ekki víst, að allir hv. þm. verði sammála um þær, og þar sem einnig er svo nálægt helgi nú, þá ætla ég, að hv. þm. muni það ekki óskapfellt, þó að málið verði tekið af dagskrá nú og aftur á dagskrá á mánudag. (PO: En þá er nú 1. apríl). Já. en við skulum vona, að enginn þeirra hv. þm., sem hér eiga hlut að máli, hlaupi apríl, og þá er vel fyrir öllu séð.