04.04.1940
Neðri deild: 30. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 601 í B-deild Alþingistíðinda. (1544)

101. mál, jarðir í Ölfusi

*Pétur Ottesen:

Ég hefði viljað gera grein fyrir afstöðu minni til þessa frv., en þar sem fundur verður í Sþ. eftir mjög skamman tíma og ég vil ekki tefja málið, mun ég ræða málið við 2. umr. og vænti þess, að hæstv. forseti gefi mér tækifæri til þess að tala almennt um málið, þó við 2. umr. sé.