11.04.1940
Neðri deild: 33. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 134 í D-deild Alþingistíðinda. (2630)

67. mál, saltfisksveiðar togara

Skúli Guðmundsson:

Með tilvísun til þess fyrirvara um afgreiðslu þessa máls, sem ég hefi og sem ég þegar hefi gert grein fyrir, vil ég, geta þess, að ég mun greiða atkv. með þeirri till., að vísa málinu til ríkisstj., þar sem ég álít það eðlilegustu lausn þessa máls. Ég tel og víst, að hæstv. ríkisstjórn muni velja þá leið, sem heppilegust er, að öllum málavöxtum athuguðum.