04.03.1940
Neðri deild: 9. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 255 í B-deild Alþingistíðinda. (422)

34. mál, skipun læknishéraða

*Fjmrh. (Jakob Möller):

Þessi styrkur var ekki tekinn upp á fjárlfrv. nú, af því að hann var ekki notaður á síðasta ári. Ég veit ekki til, að fengizt hafi hjúkrunarkona til að starfa á þessum stað, heldur mun yfirsetukona hafa gegnt þessu starfi. Getur vel komið til mála að taka þetta aftur upp, en ég sé ekki ástæðu til þess, nema málið sé athugað nánar.