06.05.1941
Neðri deild: 52. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 796 í B-deild Alþingistíðinda. (1960)

119. mál, verðlagsuppbót til héraðsgagnfræða og húsmæðraskóla

Skúli Guðmundsson:

Út af því, sem fram hefur komið, vildi ég taka fram, að ég tel eðlilegt, að fjhn. taki frv. þetta á ný til athugunar milli 2. og 3. umr., og verði þá athugað, í samráði við ríkisstj., hvernig þessu verði komið fyrir. Vænti ég þess, að hv. d. samþ. frv. til 3. umr. og samþ. brtt. á þskj. 251.