13.05.1941
Neðri deild: 58. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 844 í B-deild Alþingistíðinda. (2058)
69. mál, jarðakaup ríkisins vegna kauptúna og sjávarþorpa
Frsm. (Bjarni Ásgeirsson) :
N. hefur orðið sammála að mæla með samþykkt þessa frv. Þó gat n. ekki að öllu orðið sammála því, sem gert er ráð fyrir í b-lið 6. gr. frv., um heimild til að taka eignarnámi undir hrepp lönd, sem liggja í
öðrum hreppi. Því flytur n. brtt. við þetta ákv. á þskj. 454.
Að öðru leyti er hægt að taka lönd eignarnámi, með þeim takmörkunum, sem í 1. eru, og tel ég óþarft að skýra það nánar hér.